
Daður, slabb, DBS og dót.
28. júlí 2007Í alveg ótrúlega krúttlegri búð hér í borg fann ég þessa forláta skó. Eins og sjá má eru þeir tilvaldir til hjólreiða í íslenska slabbinu á komandi vetri svo ég minnist ekki á upplyftinguna. Hamingja og sæla með það! Fleira á www.phili-s.com

Þannig er nefninlega mál með vexti að ástkær móðir ætlar á komandi hausti að gefa mér splúnkuglænýtt hjól að eigin vali. Mér líður næstum því eins og ég sé dekruð þegar ég hugsa um það…..svei mér þá. 
Sá gripur verður valinn af mikilli kostgæfni enda um 11 ár síðan síðasti gripur kom heim í Duggugerði 5 með vörubílnum hans Munda. Ég sé fyrir mér kvenútgáfu af DBS hjólinu hans afa sem ég eignaði mér á síðari kópaskersárunum. Götuhjól með körfu og helst fótbremsum. Get hreinlega ekki beðið eftir sveittum stundum á blautum götum Reykjavíkur. Sjálfsagt fer nú mesti sjarminn af þessu fljótlega, en það er að duga eða drepast. Eitt er þó alveg víst, fleiri verða stundirnar á hjólinu heldur en þessar þrjár af árskortinu mínu í Baðhúsinu. Ojá.
Eins og áður sagði er ég í Vín hjá Bjarna í góðu yfirlæti. Í þessu dásemdar fríi reyni ég nú samt að verða sjálfri mér að einhverju gagni og læra dulitla þýsku. Sem liður í því námi gaf bóndi minn mér tölvuleik í anda Sims sem heitir Singles og gengur út á það að daðra og reyna að láta leikmenn fella hugi saman. Af þeim sökum kann ég nú frasa eins og “Von hinten umarmen” eða; faðmlag aftan frá, og “Leidenschaftliche küss” sem myndi útleggjast sem; Heitur erótískur koss. Já hún er ekki dónaleg þýskan, en ég er í það minnsta tilbúin í eldheitt samband (Bezhieung) á þýsku og geri aðrir betur. Svo ég minnist nú ekki á ótal orð yfir þrifnað á heimilinu, jább tilbúin í húsmóðurshlutverkið og allan pakkann. Svei mér þá.

Vonandi mun þessi orðaforði ekki nýtast mér á Hótel Eddu Nesjaskóla á komandi ágúst mánuði, en leikurinn verður spilaður áfram, ojá, þó ég verði seint kölluð tölvunörd, enda krefst leikurinn engra Microsoft Word hæfileika, og er það vel.
Heyrist þú vera að njóta lífsins eins og alltaf. Verðum að hittast allar K.hórurnar í haust
Ég og Hjalti erum loksins komin með samastað enda aðeins 2 vikur í að við komum suður. Vorum við það að fara að kaupa íbúð þegar við duttum niður á íbúð hjá BN, eini gallinn er að við verðum upp í Grafarholti, en það þýðir ekki að kvarta!
Hlakka til að sjá þig á nýja reiðhjólinu í nýju stígvélunum á fleygiferð í vesturbænum babblandi eins og þýsk sápuópera. MEIRA BLOGG TAKK!
Mér finnst svalt að spila Sims á þýsku. Það er örugglega gaman.
Ég trúi samt ekki að þú hafir keypt stígvélin hér að ofan? Mér finnst þau ógó.
Eftir second look finnst mér þau það ógó að þau eru næstum því svöl. Má ég máta?
Hvað meinarðu, þau eru klárlega töff. En Ógó??? Ert þú ekki blaðamaður bróðir sæll?
Ég hef áræðanlegar heimildir fyrir því að fætur Baldurs séu það smáir að skór sem þessir ættu ekki að vera of litlir.
Er þetta rétt?