h1

Vínarborg

21. júlí 2007

Ég er að deyja- úr hita. Held mig helst innandyra á nærbol og brók. Hátt í 40° stig alla vikuna….má það? Ég á mér von um aðeins 30° og sú von á vist að rætast eftir helgi. Megi það verða.

Oft fylgir hita padda. Eins og þjóð veit er mér afskaplega illa við þær, í rauninni skíthrædd á afar kjánalegan hátt. Þetta vita þær blessaðar líka og sækja í mig meira en góðu hófi gengur. Stór padda á mér í rúmminu, járnsmiður að spríkla í hárinu á mér, dauð fluga í matnum mínum á veitingastað….bara í þessari ferð. Það reynir sífellt meira og meira á fóbíuna og það er kjánalegt að hrökkva við þegar húsfluga flýgur hjá. Eitthvað verður að gera….

Annars lifi ég í sumarlúxus. Í fríi og les, borða ís, læri tónlist, elda, bjór, dey úr hita, leyfi sólinni að ná húð minni í 2 mínútur á milli þess sem ég nýt borgarinnar. Ný búin að uppgvöta alsælu þess að skoða myndlistarsöfn, með loftkælingu. Hef farið oftar á söfn heldur en í H&M þetta sumarið, ætli það sé ekki í lagi með mig? ;)

Söngurinn skipar stórt hlutverk í sumar, búin að sjá La Finta Semplice sem Mozart samdi við þriggja mánaða aldurinn og óperettuna Paganini eftir Lehár. Gott og blessað það, en jafnast samt ekki á við að fylgjast með æfingum á Brúðkaupi Fígarós, það er frábært. Rétt næ generalprufunni áður en ég flýg heim 31. júlí. Auk þess hef ég verið í tímum hjá Rannveigu Fríðu og er að fást við Paminu og Donnu Önnnu, og ekki er það létt!

Ég held næstum að það sé of gott að vera í fríi, maður gæti alveg vanist því…..

En það verður samt líka gott að komast í sveitina til Mæju í ágúst, hlaupa um í visnaða grasinu og horfa á laufin roðna…og umfram allt, finna hafgoluna kæla sig vel niður á milli sveittra hótelvakta. Myndi alveg þiggja íslenskt sumar akkúrat núna, believe you me, það er best :)

3 ummæli

  1. nei bara búin að yfirgefa blog centrallinn! jú tónlistaskólamál.. ég komst inní jazzdeild FÍH hjá Jóhönnu Linnet, hlakka óskaplega til! :) svo er ég að fara í Kennaraháskólann, taka tónmenntakennarann, bara svona að gá hvernig það leggst í mig:)


  2. nei bara búin að yfirgefa blog centrallinn! jú tónlistaskólamál.. ég komst inní jazzdeild FÍH hjá Jóhönnu Linnet, hlakka óskaplega til! :) svo er ég að fara í Kennaraháskólann, taka tónmenntakennarann, bara svona að gá hvernig það leggst í mig! :) Hlakka óskaplega að koma í bæinn og stressið!


  3. úps.. aðeins of áköf á entertakkann hehe…



Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.