
Feneyjar vs. Hrafnista?
19. júní 2007Feneyjar eru fallegar og ljótar. En þessi vika var yndisleg. Það er gaman og klént að vera rómantískur í Feneyjum. Sennilega er þetta með verri stöðum til að vera einmanna á eða í ástarsorg. Hvert sem litið er vagga bátar ámátlega í gullfallegri lýsingunni og allt og víða eru pör í sleik. Kvöldgöngusleik, skemmtistaðasleik eða sleiksleik.
Stutt frá Feneyjum eru aðrar fallegar eyjar sem sérhæfa sig ýmist í dúkasaumi, glergerðarlist eða strandmenningu. Burano var ótrúleg eyja. Litlu húsin stóðu marglita í kyrrðinni meðan gamlar konur saumuðu ógnarhratt í dúka. Ófáir drykkjumenn reikuðu um sælir á svip og ef ég væri róni myndi ég klárlega flytjast þangað. Takk fyrir og amen.

Þó ég lægi í leti var Bjarni að vinna. Hann syngur um þessari mundir hlutverk Fáfnis í óperunni Sigfried eftir Wagner í óperuhúsinu í Feneyjum. Miðinn kostar litlar 17.800 krónur í venjuleg sæti og skyldi engan undra, allt er dýrt í Feneyjum. Það kostar meira að segja sitt að koma óæðri stykkjunum úr endanum á réttan stað en það er nú önnur saga. Ég skellti mér auðvitað á frumsýningu á þessu 5 og hálfs tíma stykki og sé ekki eftir því. Söngvararnir voru afbragðs góðir (þó enginn kæmist nálægt hetjunni minni ; ) en ekki minni athygli mína fengu fínu frúrnar á Ítalíu. Þetta var eins og að koma á tískusýningu ítölsku samsteypunnar. Pallíetturnar byrgðu svo sýn að varla sást í sviðið. Fljótlega varð mér starsýnt á konu í síðum hvítum pallíettujakka með stórum svörtum doppum. Við herlegheitin var þessi rúmlega sextuga kona í 15 sentímetra hælaskóm og með hárskart úr demöntum. Mesta athygli mína vöktu þó augabrýrnar sem sennilega voru málaðar með glimmerhvítum blýhanti því fagurhvítar voru þær. Töff, eða það hlítur að vera?
En allt tekur enda….og í dag er ég aftur mætt á Hrafnistu þar sem önnur og öllu ódýrari tíska ræður ríkjum. En heimilislegt er það heillin. Að þrífa róló-karamellur úr fölskum tönnum hlítur að vera skemmtilegt, sem það er. Ahhhhh……

Haha! Þessi mynd er viðbjóður… þegar é renndi svona hratt yfir færsluna áður en ég hóf almennilegan lestur hugsaði ég bara guð minn góður, hvað gerði hún nú
heheh!
Verðum að fara að hittast!
Hæ ég er bara að kvitta, það gerist ekkert á Skerinu svo þú getur bara verið róleg þótt þú komist ekki þangað.Kvitt, kvitt.
Hehe takk Dúna mín. Væri samt til í að sjá kópasker á sumardegi, þó enginn væri út á götu!
Lilja