h1

Fréttaritarinn, og hefst þá lesturinn.

29. maí 2007

Já Hrafnista. Það er költ, þar er fjör. Sjúddirarírei. Alveg sérdeilis dásamlegt. En verð ég þar í allt sumar??? onei. Þetta sumar verður sérdeilis flókið. Rvk-Feneyjar-Reykjavík-Vín-Höfn í Hornafirði. Held að það gerist ekki miklu betra, nema að ég sakna norðursins, náttúrunnar og alls. Austrið verður að duga í sumar. Og ekki alls ólíklegt að það verði kátt á hjalla þegar ég bregð mér í vinnu til hennar Maríu Vilborgar sem verður einmitt hótelstjóri á Hótel Eddu fyrir austan. Auðvitað skelli ég mér, o seisei jú.

En nú er skólinn búinn og í heildina er ég afskaplega sátt við veturinn. Lærði söng í eina 3 mánuði af þessum 9 í vetur hjá Jóni Þorsteinssyni vegna aumingjalegra veikinda minna, en svona er þetta nú bara einu sinni. Þessir mánuðir nýttust vel og tónheyrnin hjá Gunnsteini í Tónlistarskólanum í Reykjavík var tekin með trompi, og tregu brosi á vör. Veturinn endaði svo með ljóðatónleikum í sal skólans sem heppnuðust frábærlega, enda fanta fínir krakkar í þessu námi,….jú það er líf eftir Norðurlandið….svona allavega þegar helmingur nemenda er hvort eð er að norðan. Næsta vetur fæ ég nýjan kennara og það verður engin önnur en Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, og ekki annað hægt en að vera í skýjunum yfir því!

Úr því að þetta er orðið fréttablogg er mér ekki til setunnar boðið nema að halda áfram takk fyrir.

Næsta vetur ætla ég að líka að hefja nám í félagsráðgjöf í HÍ og ekki fer ég að sleppa hendinni af Hrafnistu svo það verður nóg að gera, sem er oftast gott! Við Bjarni höfum svo loks fundið frábæra íbúð á Boðagranda með útsýni yfir sjóinn sem við verðum í næsta vetur. Gleði gleði. Svo herma nýjustu fregnir að Baldur bróðir (besti og Huldu vinur mesti) ætli að halda mér selskap þar í sumar í fjarveru óperusöngvarans ( karlmaður í karlmanns stað) og er það vel enda bróðir minn kappi góður þótt eigi sé hann skilgreindur sem bassi, baritón eða tenór.

En, út skal ek þann 9. júní og kem heim þann 17. Missi bæði af útskrift Baldurs og Önnu frænku, en Feneyjar bíða ekki. Chaio!

7 ummæli

  1. Þarna þekki ég þig.. útsýni yfir hafið. Sakna þess hérna inn í miðju landi. Eitthvað svartsýn á að sá í skottið á þér í sumar.. haaaaa jú er þaggi?!


  2. Tvilik gledi sem tad hlytur ad verda ad vera i timum hja Diddu.. eg svoleidis sver tad. En tad fer ad styttast i annan endann a tessu.. hvenaer verdur tu samt a Islandi og i Reykjavik i sumar? Verd ad fa ad sja tig og tina fogru lokka eitthvad i sumarunadinum!


  3. Góða skemmtun við þetta allt saman. Hver veit nema maður kíkji bara í heimsókn til ykkar Marvil í sumar.
    Velkomin annars aftur til skrifta!


  4. Já þetta verður spennandi sumar hjá þér. Ég er samt viss um að gamlingjarnir á Hrafnistu eiga eftir að sakna þín alveg eins og hvítasunnusafnaðarleikskólabörnin á Akureyri gerðu forðum og gera lílega enn. Ég hefði gjarnan viljað hitta þig á Íslandi í sumar; fyrir norðan, á Höfn eða með ljósa lokka í Reykjavík. Verð samt að láta mér nægja að hitta þig á suðlægari slóðum og þá sennilega léttklædda!


  5. Hrikalega er lífið þitt spennandi! :D

    Ætlaði annars bara að láta þig vita að margt er sameiginlegt í náminu hjá félagsráðgjöf og félagsfræði svo ég á örugglega slatta af bókum sem ég get lánað/selt þér :D Do not forget this!


  6. Frábært! be in touch everybody!


  7. Hæ! Bara að tjékka á þér, sæta!:) Greinilega alltaf nóg að gerast hjá þér.. Líst vel á þig og Mæju á Höfn, þið eigið án efa eftir að gera eitthvað af ykkur ef ég þekki ykkur rétt!;) Gangi þér annars allt í haginn..



Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.