
Ó mig auma
4. apríl 2007Það er víst líf eftir Barcelona, já alveg að næstu Barcelonaferð. Og ekki laust við að ég sé komin heim fyrir þó nokkrum dögum.
Um þessar mundir virðist hljóma úr öllum vinaáttum einhver óvissa um framtíðina og hið gullna val lífsins. Örlagakostinn sem við veljum okkur. Já, svo stórt hljómar það þegar velja skal nám í Háskóla, velja sér sumarvinnu eða velja til hvaða landa skal haldið í hinni einu sönnu heimsreisu. Jafnvel þeir sem þegar eru byrjaðir í námi efast. Í raun er þetta ótrúlegt; þetta er VAL! Það þarf enginn að óttast að geta ekki greitt skólagjöld, að fá ekki sumarvinnu eða komast ekki í heimsreisu. Gamla fókið á Hrafnistu segir sögur af skorti, 17 systkinum og sjálfsþurftarbúskapi. Ég gleymi aldrei þegar afi Friðrik sagði mér með miklum trega að eftir fyrsta árið sitt á laugarvatni hafi hann unnið myrkranna á milli allt sumarið á kúabúi en þó hafi það ekki dugað fyrir næsta vetri. Hver sá sem þekkir þann öðlings kappa þarf ekki að efast um að lagt hafi verið hart að sér en uppskeran varð ekki eftir því.
Svona hugsanir flögra um hugann þegar ég reyni að ákveða einhver framtíðarplön í tilvistarkreppu minni í 75% vinnu og á námslánum takk fyrir og góðan daginn. Málið er bara það að valið er svo stórkostlegt, allt er í raun möguleiki. Eftir að hafa velt því lengi fyrir mér hvað væri skemmtilegt að læra fara allt í einu aðrar hugsanir að skjóta upp kollinum. Hvaða líf kýs ég mér sem afleiðing af þessu námi?Hvað er það!
Góð og sorgleg rök duga ekki neitt. Ég er alveg jafn ringluð, næstum því. Er að hugsa um að fara í félagsráðgjöf í Háskólanum næsta vetur og sumarið er allt að koma…þetta er allt að koma….
eða….
allavega páskarnir.
Jamm páskarnir eru allavega komnir ´Lilja mín svo gleðilega páska.. og gangi þér vel að ákveða háskóla nám þitt
Vá, hvað ég skil þig vel! Er einmitt búin að velta mér upp úr þessu, fram og til baka og veit ekkert í minn haus… Þetta kemur vonandi, alveg eins og páskarnir komu..
já vá ég veit ekkert! Hvað á ég að gera næsta vetur? tja það er spurning en möguleikarnir eru svo sannalega til staðar við getum allavega ekki grenjað út af því….en það var gaman að rekast á þig á tónleikunum, vonandi rekst ég á þig oftar í borginni;) kv fyrrverandi roomie
Held að félagsráðgjöf eigi vel við þig. Annars er þessi spurning um nám alltaf erfið, er samt mjög sátt við mína ákvörðun!
Þetta er horror….Ekki veit ég hvað ég ætla að gera, sennilega besta að skjóta sér bara út á sjó í einhverjum dalli og moka pening og sjá svo til…
iss piss hætta þessu rugli með að mennta sig! bara ná sé í kall til að sjá um peningana og vera berfætt og ólétt það sem eftir er
syngjandi í eldhúsinu:)
Hvað sem öllum valkvíða líður stendur eitt eftir varðandi þessa færslu. Þú settir þessa páskaungamynd ekki inn sjálf. Það er eiginlega það eina augljósa í stöðunni.
Annars hefur þér á einhvern undarlegan hátt tekist að brjóta lögmál peningana. Þú ert eini námsmaðurinn sem ég veit um sem hefur aldrei þurft að vinna fyrir komandi vetri. Hvað þá vinna með skólanum! Ekki nóg með það heldur þekki ég enga manneskju sem hefur farið jafn oft að meðaltali á ári til útlanda og þú, systir góð. Ég er enn að súpa seyðið af 10 daga ferð minni með Express til Þýskalands í janúar, svo ekki sér fyrir endann á. En þú… nei. Þér munar ekkert um að skreppa til Þýskalands einn mánuðinn, Austurríkis þann næsta og Spánar viku síðar.
Það eru mörg fyrirbæri í þessum heimi sem ég skil ekki. Þú ert eitt þeirra.
Til hamingju med afmaelid elsku Lilja min, vona ad tu fair ter raudvinsdreitil i tilefni dagsins.
…er’etta búið?!?
jæææææja vinkona..