
Barcelona
16. mars 2007Þeir sem til þekkja vita að ég er vanaföst eins og nautið sem ég er. Því var það erfið ákvörðun að yfirgefa hann central vin minn eftir 3ja ára farsælt samband. Það var eitthvað sérstaklega heimilislegt við ljóta bleika litinn og mottóið að komast af með sem minnst átti vel við í þessu tilfelli. Íhaldssemin kristallaðist í bleika litnum. En ekki má gleyma því að blog.central.is er takmarkað en passaði svo sem vel við stirða tölvukunnáttu mína. Þeir sem hafa séð til mín vinna skjöl í Word vita hvað ég á við. Það þarf því enginn að halda að ég hafi komið þessari mynd hér inn á hausinn sjálf, nei ekki eina einustu mínútu. Og myndin hér að neðan….o nei! En inn er hún komin með eftirfarandi sögu.
Jú ég er í Barcelona og það er yndislegt. Líkt og aðrar ungpíur Íslands slæ ég ekki slöku við þegar gengið er fram hjá aljþóðlegum sem og spænskum verslunarkeðjum með litlum árangri þó. Spænskar dúkkustærðir eru ekki hannaðar fyrir mína upphandleggi og hvað þá á mína “stuttu” leggi sem hingað til hafa ekki þurft að súpa seyðið af því að vera smáir. Og það væri hægt að halda áfram því bygging norrænna kvenna virðist vera virkilega á skjön við þá suðrænu því jafnvel skórnir eru of grannir fyrir táberg sem passar í Nokia stígvél. En nóg af misjöfnum búðarferðum…..

Þessa mynd tók Bjarni af “mér”fyrsta dag ferðarinnar. Eitthvað hafa spænsku stærðirnar leikið greyið stúlkuna grátt (það skal tekið fram að báðar vorum við grunlausar um aðal myndefni tiltekinnar myndar) nema ekki sé gert ráð fyrir því að leggja sig í spænskum klæðnaði á jafnsléttu. Já mér er spurn.
Temmilegt start svona… er samt enn pínu bitur yfir að þú skulir hafa yfirgefið centralið.
Hvað segiru, er fegó líkamsræktarátakið útrunnið?
Já, sammála Baldur. En það verður að vera fjölbreitni í þessu. Ég afturá móti er sáttur með mitt og nenni ekkert að vera að breyta.
Ég skildi ekki þetta blogg alveg 100% Lilja.
Mér þykir leiðinlegt að þú sért ekki í “fókus” á myndinni. Það er þannig með þennan autofocus á myndavélinni minni að hann velur alltaf stærsta flötinn í myndefninu og fókuserar á hann. Sorry Lilja.
hahaha flott mynd. Ég bjó í suður-Frakklandi á tímabili og ætlaði að reyna að finna mér brjóstahaldara. Svona þér að segja þá komst annað júgrið á mér ekki fyrir í þeim brjóstahöldurum sem voru til þar. Þessar frönsku komast jú ekki með tærnar þar sem dolly hefur hælana…hehe. Ég bíð þín með uppábúið rúm þegar þú kemur;) sí jú beib
Haha… Góð mynd! Já.. mér fannst bleiki liturinn á central fara þér vel, en þetta er mjög flott síða. Hafðu það ávallt sem best mín kæra!:)
e-mailid mitt er huldahall@gmail.com…
já unaður enda fæ ég grænar af blog.centrar. en elksan.. það er hverjum manni ljóst aðþetta gerðiru ekki sjálf!
Hahaha, rifjast upp fyrir mer svo margar stundir tar sem eg fylgdist med ter reyna ad eiga vid tad hraedilega forrit Word.. tu matt eiga tad elskan min ad tu gafst aldrei upp og syndir barattuvilja tinn med frumlegum adferdum vid skjalavinnslu. Oseiseijaja einsog konan sagdi. En mer list vel a tessa nyju heimilishaga tina, eg var aldrei viss med pikubleika litinn.
OK.Þarna ertu.Ekki alveg hætt. Gott fyrir ömmu þína .Hún fylgist með þér.
Flott síða… gaman þegar menn breyta til tekst vel.
Myndin er snilld! hehe
Svakalega snjöll mynd elskan…ég veit ekki með litinn á þessum nærbuxum hjá konunni…er hún brennivínsdauð eða hvað ???
Allavega er þetta fín síða en þú verður að segja honum Bjarna að reyna að halda athyglinni á þér en ekki ókunnugum kvenmannsbotnum.
Ha,ha!
Tek undir orð sístu söngkonu…
meinti vitaskuld síðustu og afsaka hér með ritvillu mína…
Er ekki kominn tími á nýtt blogg? Þó að það væri ekki nema bara til þess eins að forða þessum ásökunum í minn garð aðeins neðar á síðuna.
Jahh svo sannarlega kominn tími á nýtt blogg, en lykilorð mitt á síðuna virðist vera víðs fjarri.
Einhversstaðar í útlandinum ef mig minnir rétt!
Rosalega flott nýja síðan þín
Nú bíð ég bara eftir nýrri færslu
Til hamingju með síðuna!! sennilega samt kominn tími á nýtt blogg